4.11.2014 22:07:00
Hagræn áhrif ritlistar

Dr. Ágúst Einarsson flytur erindi um niðurstöður rannsókna sinna á íslenskum bókamarkaði sem birtar eru í nýútkominni bók hans, Hagræn áhrif ritlistar, 8. nóvember nk. kl. 11.00 í Norræna húsinu. Í skrifum sínum leggur Ágúst fram 10 stefnumarkandi aðgerðir til að efla ritlist hérlendis. Þar nefnir hann meðal annars tillögu sína um niðurfellingu virðisaukaskatts á bækur, tímarit og blöð frá ársbyrjun 2016. Einnig aukin framlög til Bókasafnssjóðs og bókasafna, langtímaáætlun um eflingu lesskilnings og hvernig efla megi námsbókaútgáfu á íslensku. Umræður verða í lok erindis.

Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar fyrir fundinn frá kl. 10:30.

Að erindinu standa Félag íslenskra bókaútgefenda - FIBUT, Rithöfundasamband Íslands RSÍ, Norræna húsið, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO, Miðstöð íslenskra bókmennta - Icelandic Literature Center Hagþenkir og Þot - Bandalag þýðenda og túlka.


Til baka

Prentvæn útgáfa | Senda á Facebook | RSS

Bandalag þýðenda og túlka | Hrísmóum 11 | 210 Garðabær | [email protected]