10.9.2017 12:26:00
ORÐSTÍR – heiðursverðlaun fyrir þýðendur íslenskra bókmennta á erlendar tungur

Verðlaunahafar 2017


ORÐSTÍR  er heiðursviðurkenning ætluð þýðendum íslenskra bókmennta á erlend mál og voru nú veitt í annað sinn. Heiðursviðurkenningunni er ætlað að vekja athygli á ómetanlegu starfi þeirra fjölmörgu einstaklinga sem stuðlað hafa að útbreiðslu íslenskra bókmennta erlendis. Jafnframt er viðurkenningin þakklætisvottur og hvatning til þeirra þýðenda sem viðurkenninguna hljóta hverju sinni.

 

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti heiðursviðurkenningarnar á Bessastöðum  föstudaginn 8. september  í tengslum við Bókmenntahátíð í Reykjavík sem nú stendur yfir. Sunnudaginn 10. september kl. 14.00 taka verðlaunahafar síðan þátt í pallborðsumræðum um þýðingar í Veröld, húsi Vigdísar Finnbogadóttur, ásamt rithöfundunum Sjón og Jón Kalman Stefánsson.


Að þessu hlutu heiðursviðurkenningu þau Eric Boury frá Frakklandi og Victoria Ann Cribb frá Englanbdi fyrir þýðingar sínar, en þau hafa þýtt fjölmörg verk síðustu ár. Íslenskar bókmenntir hafa verið í glæsilegri sókn á erlendum markaði síðustu tvo áratugi. Þar hafa margir lagt sitt af mörkum og of langt upp að telja allt það fólk sem hefur lagt hart að sér í þágu íslenskra bókmennta. Það starf væri þó ekki til neins ef Ísland ætti sér ekki vini á borð við þau Eric Boury og Victoriu Ann Cribb.

 

Victoria og Eric eru bæði mikilvirkir þýðendur með brennandi áhuga á íslenskum bókmenntum og tungu. Victoria er um þessar mundir að ljúka doktorsprófi í forníslensku frá Cambridge-háskóla og Eric sinnir íslenskukennslu við íslenskudeild Háskólans í Caen. Þau hafa bæði þýtt bækur eftir Sjón, Arnald Indriðason og Andra Snæ Magnason. Victoria hefur líka þýtt Yrsu Sigurðardóttur og Steinunni Sigurðardóttur, Gyrði Elíasson og Torfa Tulinius.Eric hefur m.a. þýtt bækur eftir Jón Kalman Stefánsson, Einar Má Guðmundsson, Guðmund Andra Thorsson og Kristínu Ómarsdóttur svo nokkrir höfundar séu nefndir. Samanlagt hafa farið frá þeim og eru væntanlegar einar 75 vandaðar þýðingar. Fjölhæfni þeirra og fagmennska er einstök og starf þeirra fyrir íslenskar bókmenntir ómetanlegt.


Heiðursviðurkenningunni ORÐSTÍR, sem merkir bókstaflega heiður eða sæmd (tír) orðsins, er ætlað að vekja athygli á ómetanlegu starfi þessara fjölmörgu einstaklinga, ásamt því að vera þakklætisvottur og hvatning, sem viðurkenninguna hljóta hverju sinni. Viðurkenningin er veitt annað hvert ár, einum eða tveimur einstaklingum sem hafa þýtt verk úr íslensku á annað mál með vönduðum hætti og með þeim árangri að aukið hafi hróður íslenskrar menningar á erlendum vettvangi. Hluti af viðurkenningunni er veglegur dvalarstyrkur sem er ætlað að auðvelda þýðendum að styrkja tengslin við menningu frummálsins eða markmálsins. Að þessu sinni var ákveðið að heiðra þau Eric Boury, sem þýðir af íslensku á frönsku, og Vicky Cribb, sem þýðir af íslensku á ensku.


Að ORÐSTÍR standa Miðstöð íslenskra bókmennta, Bandalag þýðenda og túlka, Íslandsstofa, embætti Forseta Íslands og Bókmenntahátíð í Reykjavík. Í stjórn að þessu sinni sátu fyrir hönd þessara aðila þau Kristján Jóhann Jónsson, Magnea J. Matthíasdóttir, Kristjana Rós Guðjohnsen, Örnólfur Thorsson og Stella Soffía Jóhannesdóttir.

 

Við hjá Bandalagi þýðenda og túlka óskum Eric og Vicky innilega til hamingju með viðurkenninguna!






Til baka

Prentvæn útgáfa | Senda á Facebook | RSS

Bandalag þýðenda og túlka | Hrísmóum 11 | 210 Garðabær | [email protected]