|
Bandalag þýðenda og túlka var stofnað 30. september 2004. Bandalagið er fagfélag þýðenda og túlka og tilgangur þess er að vinna að hagsmunum félagsmanna, efla kynningu á starfi þeirra, auka samstarf þeirra, stuðla að endurmenntun og símenntun, koma á samstarfi við sambærileg samtök erlendis og gæta hagsmuna og réttar þýðenda og túlka í samræmi við íslensk lög og alþjóðavenjur.
Félagsmenn geta þeir einir orðið sem eru í einhverju af aðildarfélögunum, sbr. 3. grein laga bandalagsins.
Til baka
|
|