|
1. gr. Heiti
Félagið heitir Bandalag þýðenda og túlka. Heimilisfang og varnarþing þess er í Reykjavík.
2. gr. Tilgangur Tilgangur félagsins, sem er fagfélag þýðenda og túlka, er að vinna að hagsmunum félagsmanna, efla kynningu á starfi þeirra, auka samstarf þeirra, stuðla að endurmenntun og símenntun, koma á samstarfi við sambærileg samtök erlendis og gæta hagsmuna og réttar þýðenda og túlka í samræmi við íslensk lög og alþjóðavenjur.
3. gr. Aðild Félagar geta þeir orðið sem starfa við þýðingar eða túlkun, eru menntaðir þýðingafræðingar eða túlkar ellegar meðlimir í neðangreindum félögum. Er það stjórnar að meta umsóknir þeirra sem eru utan þeirra félaga, samkvæmt reglum sem hún setur.
Blaðamannafélagi Íslands, Félagi atvinnuþýðenda, Félagi háskólamenntaðra táknmálstúlka, Félagi löggiltra dómtúlka og skjalaþýðenda Félagi sjónvarpsþýðenda, Félagi túlka, Félagi þýðenda á Stöð 2, Hagþenki, Íslenska esperantósambandinu, Rithöfundasambandi Íslands, Babel, félagi þýðingafræðinema við HÍ, STÍL, félagi tungumálakennara á Íslandi
4. gr. Stjórn Stjórn Bandalags þýðenda og túlka skipa fimm aðalmenn (formaður, ritari, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur) og tveir til vara. Formaður skal kosinn sérstaklega á aðalfundi en síðan aðrir stjórnarmenn og skipta þeir með sér verkum. Skal ritari vera staðgengill formanns. Til að stjórnarfundur teljist ákvörðunarbær skulu vera minnst fjórir stjórnarmenn mættir og skulu tillögur teljast fallnar ef atkvæði falla jafnt. Kjörtímabil stjórnarmanna er tvö ár í senn. Á stofnfundi skal kjósa stjórn alla og varamenn. Eftir það skal kjósa til skiptis, annað árið formann, tvo stjórnarmenn og varamann og hitt árið tvo stjórnarmenn og varamann.
5. gr. Aðalfundur Aðalfund Bandalags þýðenda og túlka skal halda árlega, að jafnaði í vetrarlok en þó aldrei síðar en 1. júní. Á aðalfundi flytur formaður skýrslu um starf félagsins á liðnu ári. Reikningar skulu endurskoðaðir árlega af skoðunarmönnum félagsins og lagðir fyrir aðalfund til samþykktar. Stjórnarkjör skal fara fram á aðalfundi, sbr. 4. gr. Á aðalfundi skal og kjósa tvo skoðunarmenn reikninga og mega þeir ekki vera úr hópi stjórnarmanna. Um kosningu í nefndir eða kjör einstaklinga til sérstakra starfa fer eftir ákvörðun fundarstjóra nema tillögur um annan hátt þar á hljóti stuðning fundarins. Nú hljóta tveir menn jafna atkvæðatölu og skal þá hlutkesti ráða. Tilkynna skal aðalfund skriflega, t.d. í tölvupósti, með minnst þriggja vikna fyrirvara og skal fundurinn samtímis auglýstur á vef félagsins. Í tilkynningunni skal greina meginefni tillagna stjórnar til lagabreytinga séu þær fyrirhugaðar. Skriflegar tillögur félagsmanna um lagabreytingar og framboð til stjórnarstarfa skulu hafa borist stjórn eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund og skulu þær fylgja endanlegri dagskrá í fundarboði.
6. gr. Sérstakur félagsfundur Stjórn skal boða til félagsfundar innan tveggja vikna ef 20% félagsmanna fara fram á það.
7. gr. Úrskurðar- og siðanefnd Á vegum Bandalags þýðenda og túlka starfar siðanefnd. Í nefndinni skulu vera þrír félagsmenn kosnir á aðalfundi. Nefndin setur félagsmönnum siðareglur sem skal staðfesta á fyrsta aðalfundi. Jafnframt er hlutverk nefndarinnar að setja niður deilur og skera úr um ágreiningsefni sem upp kunn að koma um faglega þætti þýðinga. Þýðendur, túlkar og verkbeiðendur geta vísað málum til nefndarinnar. Skal þá skipuð úrskurðarnefnd sem í sitja einn fulltrúi siðanefndarinnar, einn fulltrúi hagsmunaaðila og einn tilkvaddur sérfróður aðili sem báðir fulltrúar samþykkja.
8. gr. Viðurlög við broti á lögum og reglum félagsins Öllum félagsmönnum er skylt að hlíta lögum og reglum félagsins. Hafi félagsmaður framið alvarlegt brot á lögum þess eða reglum, valdið því vísvitandi tjóni eða verið metinn vanhæfur af siðanefnd er stjórn heimilt að víkja honum úr félaginu.
9. gr. Heiðursfélagar Aðalfundur Bandalags þýðenda og túlka hefur heimild til að kjósa heiðursfélaga sem verði ævilangt undanþegnir félagsgjöldum. Þarf 3/4 hluta greiddra atkvæða á aðalfundi til að kjör heiðursfélaga sé lögmætt. Tilnefningar skal senda stjórn félagsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund og koma þær því aðeins til álita að stjórnin sé þeim meðmælt.
10. gr. Félagsgjöld Félagsgjöld skulu ákveðin af félagsmönnum á aðalfundi. Þeir félagsmenn einir, sem skuldlausir eru við félagið, skulu hafa atkvæðisrétt á fundinum. Greiði félagsmaður árgjald sitt ekki þrjú ár samfleytt telst hann hafa sagt sig úr félaginu. Þó skal gefa félagsmanni kost á að greiða ógreidd gjöld áður en hann er felldur brott af félagaskrá.
11. gr. Lagabreytingar Breytingar á lögum Bandalags þýðenda og túlka verða ekki gerðar nema á lögmætum aðalfundi og þó því aðeins að 2/3 fundarmanna gjaldi þeim jáyrði sitt. Allar tillögur um lagabreytingar, svo og aðrar veigamiklar tillögur sem bera skal undir atkvæði á aðalfundi, skulu boðaðar í dagskrá fundarins, sbr. 5. gr.
12. gr. Rekstrarafgangur Rekstrarafgangi af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við tilgang þess.
13. gr. Slit félagsins Ákvörðun um slit félagsins skal tekin á aðalfundi með auknum meirihluta (2/3 hlutum atkvæða). Skulu eignir þess, ef einhverjar eru, renna til Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
14. gr. Gildistaka Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á framhaldsstofnfundi í Reykjavík 12. október 2004.
Til baka
|
|